Áramótaskaup 2022

Ég eyddi einu kvöldi inn í IKEA þegar verið var að taka upp nokkrar senur fyrir Áramótaskaupið,
Lítið búr og nokkra fiska hljóðaði símtalið uppá og ég mætti með 54 ltr búr með gullfiskum
Eina sem ég vissi var að talstöð yrði hent ofan í búrið og því best að nota gullfiska sem kippa sér ekki upp við hvað sem er

Til að búrið yrði ekki alveg tómt setti ég plöntur Microsorium og Egeria densa til að fá smá lit á móti fiskunum
Ég fullvissaði mig um að talstöðin væri ekki með batteríi til öryggis og svo var bara að bíða á meðan tökur fóru fram til að geta tekið búrið aftur niður sem ég gerði,
Hvað gerir maður ekki til að fá fiska í sjónvarpið
