Maylandia estherae

Þessi tegund er kölluð rauð zebra og standa hrygnurnar á flestum stöðum aðeins undir nafni þótt þær séu meira appelsínugular en hængarnir eru oftast hvítir, ljósbláir, appelsínugulir eða sambland af þessum litum allt eftir hvaða úr Malawi vatni þeir koma
Þessi hængur er frekar ljós

Annar hængur meira appelsínugulur, þessi tegund verður um 15 cm

Ungur hængur sem er litmeiri
en sum afbrigði missa litin við kynþroska, hængar fá oddhvassari bak og gotraufar ugga og stærri eggjabletti

Falleg hrygna og hér sést vel hvernig gotraufarugginn er rúnaður og eggjablettir minni og færri miðað við fullvaxta hænga

Allar mbuna eru munnklekjarar og hér er hrygna með fullan munninn

Þessi seiði eru um 2 vikna svo hrygnan hefði getað haldið þeim í góða viku í viðbót eða þar til eggjapokinn væri nærri búinn, en þarna ákvað ég að ég þyrfti að taka snemma úr hrygnunni þar sem hún var undir miklu stressi og líkleg til að borða sín eigin seiði en betra er að taka seiði út eftir tæpar 4 vikur, en alltaf skemmtilegast samt ef hægt er að setja hrygnuna í sér búr og leyfa henni að sleppa þeim hægt og rólega
