phalloceros caudimaculatus

Phalloceros caudimaculatus

Hængur af þessari tegund eins og sést á virðulegum pindli undir honum sem er um það bil 1/3 af hans stærð
Þessi tegund finnst í sunnanlega í Brasilíu, Úrúgvæ , norður Argentínu og upp til Paragvæ

Phalloceros caudimaculatus

Hér eru 3 hrygnur og eins og hængurinn fyrir ofan eru þau doppótt sem er það form sem fólk vill í fiskabúr en oftast er fiskurinn aðeins með eina doppu í náttúrunni

Phalloceros caudimaculatus

Þessa hrygnu veiddi ég í Sarandí í Úrúgvæ um 5 cm á innfelldu myndinni sést önnur hrygna í búri og þar sést betur blái liturinn sem er í kring um svörtu doppuna en bæði doppan og blái liturinn er misjafn eftir veiðistöðum

Phalloceros caudimaculatus

Villtur hængur frá Sarandí og á innfelldu mynd er ræktaður hængur í fiskabúri,
hængarnir eru um helmingi minni en hrygnurnar
þar sem þessi tegund finnst sunnanlega í suður-ameríku þá þola þeir bæði lágan og háan hita eða 10-30c

Phalloceros caudimaculatus

Þessi litli skurður gaf vel af ýmsum fiskum og þar með talið þessa Phalloceros caudimaculatus hér fyrir ofan,
hægt rennsli og mikill gróður er það sem þessir fiskar leita í og er alltaf gott að líka eftir náttúrulegum heimkynnum til að fiskunum líði sem best