Fiskakallinn er sérverslun með fiska og fiskatengdar vörur. Mikil áhersla er lögð á að selja aðeins heilbrigða og flotta fiska og er mikill metnaður í okkar eigin ræktun á hinum ýmsu tegundum ásamt innflutningi á sjaldgæfari tegundum Opið á laugardögum milli 14 og 18 og Fimmtudagskvöldum milli 18 og 21
Fiskamatur og vörur
Fiskakallinn er með úrval af alls kyns vörum sem tengjast okkar skemmtilega hobbíi og stöðugt bætist við úrvalið, við erum samt aðeins með minni búr á lager eða upp í 110 ltr aðrar stærðir þurfum við að panta en oft hægt að redda stærri búrum með litlum fyrirvara
Plöntur
Plöntur eru alltaf til hjá okkur og leggjum við áherslu á harðgerðari tegundir sem henta í flest búr, við bæði ræktum sjálfir og erum með ræktendur á landinu ásamt því að panta reglulega inn plöntur