Secret place Uruguay

Staður í norður hluta Úrúgvæ sem annað hvort menn vissu ekki nafnið á eða vildu ekki að hægt væri að finna hann aftur án þeirra.
Stöðuvatn sem datt í smá foss niður lítin en djúpan læk blasti við þegar við komum á svæðið 

Ég ákvað að byrja í læknum með kastnet ,mikil mold var á botninum sem kom upp með netinu ásamt þessum Prochilodus

Stór og stæðileg Astanax tetra sem líkist abramis 

Önnur stæðileg og er þetta Astianax lacustris sem væri flott í hóp í stóru búri 

Þarna eru veiðifélagarnir að reyna að finna Apistogramma tegundir í gróðrinum, vinstra meginn á myndini er vatnið en þykkur flotgróður lá upp við bakkan svo það sést ekki, en það sést að sumir eru komnir út í vatnið

Hængar af Apistogramma borellii og ein hrygna 
Hængarnir verða blárri og hrygnan gulari 

Ég labbaði upp með vatninu og setti stóran handháf undir gróðurinn við bakkan og þar leyndist þessi litli Hoplias sem verður einn af öflugustu ránfiskunum í landinu ef hann nær að forðast alla þá sem vilja éta litla fiska 

Þessi hnífafiskur Brachypopomus gauderio er einn af ellefu tegundum hnífafiska sem eru í Úrúgvæ og sá algengasti í mínum ferðum 
Á innfelldu myndinn er einhver rækjutegund berjuð með grænum eggjum 

Stundum koma snákar í netið þótt oftast séu þeir á landi sem við náum og skoðum , þessi tegund Helicops infrataeniatus kom í háfinn undir bakka og hélt ég fyrst að ég væri með ál en sá fljótlega að þetta væri vatnasnákur og fékk heimamann til að halda á honum svo ég gæti tekið myndir 

Í djúpu vatni með þykkum gróðri er frekar erfitt að veiða svo ég fékk bara af og til einhvern titt, vinstri mynd er af  Characidium rachovii  og hin gæti verið Psalidodon eigenmanniorum en nokkrar mjög líkar tegundir eru skráðar þarna 

Apistogramma borellii hængur og hrygna á innfeldu mynd 

Þessi tegund af gróðri var mikið meðfram bökkunum 

Cichlasoma dimerus var stærsta síkliðan sem kom upp þarna en þær stærri halda sig fyrir utan gróðurinn

Lítill áll sem miðað við flekkina er Synbranchus marmoratus þessi verður eins og handleggur að stærð með tímanum 

Hyphessobrycon eques er reglulega í búrum hérlendis og gaman að veiða fiska sem maður þekkir vel 

endalaust af litlum tetrum sem oft eru svo líkar að ég vill ekki giska á nafnið 

þykkur flotgróður yfir djúpu vatni, svona aðstæður eru mjög erfiðar fyrir veiði en fínar fyrir augað

Skemmtilegur hnífafiskum kom í netið og er það tegundin Eigenmannia trilineata 
 ( trilineata á latinu þýðir þrjár línur )

Annar ekki síðri af ætt Gymnotus og af þeim fjórum tegundum sem ég hef myndir af finnst mér Gymnotus cuia vera líkastur 

Það er við hæfi að enda á sama fossi og greinin byrjaði á þar sem Rex nýtti sér vatnið til að skola að sér eftir heitan dag í suður-ameríku. 

Twitter
Youtube
Scroll to Top